© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.11.2007 | 12:26 | oddur
Leikir kvöldsins
Páll Axel hefur verið að skora grimmt fyrir Grindavík í vetur
Í kvöld verða 4 leikir í Iceland Express deild karla og einn leikur í Iceland Express deild kvenna.

Hjá konunum mætast Valur og Hamar í Vodafonehöllinni. Þessi lið eru bæði án stiga í Iceland Express deildinni eftir að hafa tapað fyrstu fjórum leikjum sínum. Það má því búast við mikilli baráttu hjá báðum liðum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00.

Í Grindavík tekur Grindavík á móti Skallagrím. Grindavík er í öðru sæti deildarinnar en Skallagrímur í 6.-9. sæti með 2 sigra í 5 leikjum. Allur ágóði af leiknum mun renna til fjölskyldu Mörtu Guðmundsdóttur, fyrrverandi leikmanns Grindavíkur og Keflavíkur, en hún lést á mánudaginn.

Í Stykkishólmi mætast Snæfell og Tindastóll. Snæfell byrjaði illa og tapaði fyrstu þremur leikjum sínum en hafa síðan unnið síðustu tvo leiki. Tindastóll hefur aftur á móti leikið nokkuð vel í fyrstu leikjum tímabilsins.

Njarðvík fær Stjörnuna í heimsókn í Ljónagryfjuna. Njarðvíkingar unnu fyrstu þrjá leiki sína en töpuðu næstu tveimur gegn Keflavík og KR. Bæði lið hafa skipt um erlenda leikmenn nýlega en það er ekki komið á hreint hvort nýjir leikmenn spili í kvöld.

Í Seljaskóla taka ÍR-ingar á móti Fjölni. Bæði lið hafa byrjað frekar hægt og eru eflaust staðráðin í að landa mikilvægum sigri í kvöld.

Allir leikirnir í Iceland Express deild karla hefjast klukkan 19:15.

Í 2. deild karla verður einn leikur þegar ÍA tekur á móti HK á Akranesi. Leikurinn hefst klukkan 19:30.


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
UMFN og KR mættust í Bikarúrslitaleiknum í 10. flokki karla 2008 á Bikarúrslitahelginni sem haldin var í Keflavík. UMFN vann 77-53 og var Valur Orri Valsson sem er hér til vinstri valin maður leiksins. Með honum að taka við bikarnum er Oddur Birnir Pétursson en þeir eru fyrirliðar Njarðvíkur. Feður þeirra beggja, Valur og Pétur, léku lengi með Njarðvík á sínum yngri árum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið