© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.11.2007 | 11:48 | oddur
5 leikir í Iceland Express deild karla í kvöld
Úr leik KR og UMFN í úrslitunum í vor.
Í kvöld verða 5 leikir í Iceland Express deild karla. Það verða margir stórleikir á dagskrá og körfuboltaáhugamenn geta valið úr mörgum skemmtilegum leikjum í kvöld.

Í DHL-Höllinni mætast KR og Njarðvík í fyrsta sinn síðan í úrslitunum í vor. Það er mikil spenna í loftinu fyrir þennan leik enda stefna bæði lið hátt í vetur. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður í beinni útsendingu á Sýn.

Í Garðabæ mætast nýliðar deildarinnar þegar Stjarnan tekur á móti Þór Akureyri. Þór hafði mikla yfirburði í 1 deildinni í fyrra en Stjarnan hefur styrkt leikmannhóp sinn töluvert síðan þá.

Á Sauðárkróki mæta heimamenn í Tindastól liði Grindavíkur. Bæði lið hafa leikið nokkuð vel í byrjun tímabils og unnið þrjá af fjórum fyrstu leikjum sínum.

Í Borgarnesi mætir Skallgrímur liði Fjölnis. Bæði lið hafa átt á brattan að sækja í fyrstu umferðunum og eru með 1 sigur eftir fjóra leiki.

Í Keflavík mætir topplið Keflavíkur bikarmeisturum ÍR. Keflvíkingar hafa enn ekki tapað leik en ÍR-ingar hafa unnið tvo leiki og tapað tveimur.

Á morgun lýkur svo 5. umferðinni þegar Hamar mætir Snæfelli í Hveragerði.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Anna María Sveinsdóttir og Kristín Blöndal fagna bikartitli Keflavíkur árið 2000.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið