© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.10.2007 | 22:43 | oddur
Úrslit kvöldsins
Páll Axel skoraði 23 stig fyrir Grindavík í kvöld (mynd: Snorri Örn)
Nú er leikjum kvöldsins í Iceland Express deild karla lokið.

Keflvíkingar unnu Þór Akureyri á heimavelli sínum 99-85. Með sigrinum náðu þeir toppsæti deildarinnar en þeir hafa unnið alla 3 leiki sína í deildinni í vetur.

Grindavík náði í góðan útisigur gegn nýliðum Stjörnunnar. Lokatölur leiksins voru 86-92.

Í Hveragerði náði Hamar í fyrsta sigur tímabilsins þegar þeir sigruðu Fjölni 73-62.

Í DHL-Höllinni sigruðu KR-ingar Snæfell 85-73. Snæfell er þar með eina liðið í deildinni sem hefur ekki unnið leik en þeir hafa mætt erfiðum andstæðingum í byrjun móts.

Á morgun lýkur svo þriðju umferðinni þegar Tindastóll og Skallagrímur mætast annars vegar og Njarðvík og ÍR hins vegar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Rúnar Birgir Gíslason dómari á leið í dómarakast í úrslitaleik á Scania Cup á páskadag 2001
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið