© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.10.2007 | 8:46 | oddur
Lettland og Hvíta Rússland áfram
Lettar fögnuðu vel eftir sigurinn á Frökkum
Það urðu óvænt úrslit á Evrópumóti kvenna í gær þegar Hvíta Rússland sló út Evrópumeistarana frá Tékklandi.

Það voru ekki margir sem spáðu Hvíta Rússlandi sigri í leiknum gegn stórveldi Tékka. Tékkar unnu sigur í E-riðli en Hvíta Rússland var í fjórða sæti F-riðils eftir keppni í milliriðlum.

Hvíta Rússland lék kom þó á óvart með frábærum leik gegn Tékkum. Leikurinn var jafn og spennandi en Hvíta Rússland var þó sterkari aðilinn í síðari hálfleik og náði að sigra 46-52.

Lettar tryggðu sér einnig sæti í 4-liða úrslitunum þegar þær sigruðu Frakka 66-62. Lettland náði góðri forystu í fjórða leikhluta og leiddi 59-46 þegar rúmlega fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Frakkland kom þá með mikið áhlaup og náði að minnka muninn í 2 stig þegar 14 sekúndur voru eftir af leiknum. Tékkar náðu þó að nýta vítin sín í lokin og tryggðu sér sigur.

Í dag lýkur 8-liða úrslitunum með tveimur leikjum. Litháen mætir Rússlandi og Spánn mætir Belgíu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Richard Stokes, fyrrverandi FIBA dómari, kom hingað til lands haustið 2006 og hélt m.a. fyrirlestra á haustfundi dómara í Reykjanesakademíunni.  Sigmundur Már Herbertsson virðist þó ekki alveg á því að eftirláta honum boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið