© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.10.2007 | 19:36 | oddur
Utandeildin hjá Breiðablik
Breiðablik mun eins og undanfarin ár standa fyrir utandeild í körfuknattleik. Öllum er heimil þátttaka sem ekki leika í Iceland Express deild karla og kvenna eða í 1. deild karla.

Öllum liðum verða tryggðir 5 leikir í deildinni en keppnisfyrirkomulag verður ákveðið þegar ljóst er hversu mikill fjöldi liða tekur þátt.

Þátttökugjald er kr. 35.000 pr. lið. Hvert lið fær 5 leiki með dómara og ritaraborði. Hvor hálfleikur er 12 mínútur og klukka ekki stoppuð nema 2 síðustu mínútur leiksins. Innáskiptingar frjálsar og eitt leikhlé í síðari hálfleik. Leikir fara fram í Smáranum og verður leikið á föstudagskvöldum í vetur. Hægt verður að fylgjast með niðurröðun og úrslitum leikja á Breidablik.is.

Þátttökutilkynningum þar sem fram kemur nafn liðs, nafn, heimilisfang, gsm sími og netfang forsvarsmanns, skal skila til Péturs Hrafns Sigurðssonar, petur@getraunir.is fyrir 10. október.


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þórir Magnússon leikmaður KFR var mikil langskytta. Hér er hann um það bil að hleypa af og Kolbeinn Pálsson leikmaður KR er aðeins of seinn til varnar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið