© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.9.2007 | 21:33 | RG | Iceland Express-deildin
Valur í Iceland Expressdeild kvenna
Það er nú orðið ljóst að aðeins munu leika sjö lið í Iceland Expressdeild kvenna í vetur. Fyrr í sumar ákvað Breiðablik að senda ekki lið til þátttöku í deildinni og var því kannaður hugur allra liða sem munu taka þátt í 1. deildinni í vetur.

Það var ekki fyrr en komið var að nýliðum 1. deildarinnar sem nýtt lið í Iceland Expressdeildina fannst. Valsstúlkur munu taka sæti Breiðabliks en Valur hefur ekki sent kvennalið til þátttöku síðan veturinn 1995-96. Þetta þýddi þó það að ÍS mun ekki senda lið því allir leikmenn ÍS gengu til liðs við Val.

Það verða því einungis sjö lið í deildinni og leikin fjórfjöld umferð, tuttugu og fjórir leikir á lið en keppni hefst 13. október með þremur leikjum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ágúst Herbert Guðmundsson, þáverandi þjálfari Þórs og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells ásamt Chuck Daly í Valencia árið 2000. 
Þeir félagar voru á þjálfaranámskeiði þar sem Daly, Ettore Mesina og tveir landsliðsþjálfarar Spánar héldu frábært námskeið. Myndin var tekin eftir einn fyrirlesturinn.
 
Chuck Daly lést 9. maí 2009, eftir baráttu við veikindi. Hann gerði meðal annars Detroit Pistons að meisturum tvö ár í röð og vann gullið mðe Draumaliðinu á Ólymíuleikunum í Barcelona 1992.
 
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið