S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
12.9.2007 | 10:12 | oddur
KR og ÍR sigruðu
Fannar Ólafsson lék með KR í gær. (Mynd úr leik gegn ÍR á síðasta tímabili)
Hvorugur þessarra leikja varð mjög spennandi því KR-ingar burstuðu Fjölni og ÍR vann öruggan sigur á Val. Valsmenn náðu að halda í við ÍR-inga framan af leik liðanna í Seljaskóla en heimamenn stungu af þegar leið á leikinn og fóru með sigur af hólmi. Lokatölur leiksins voru 91-61. KR-ingar áttu stórleik á nýja parketgólfinu í Grafarvoginum. Staðan var 9-9 í byrjun leiks en eftir það stungu KR-ingar af. Þeir nýttu skotin sín vel og stjórnuðu leiknum algerlega. Lokatölur leiksins voru 72-111. Umfjöllun um leikinn má lesa á kr.is/karfa. |