S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
5.9.2007 | 9:45 | oddur
Evrópukeppnin heldur áfram á Spáni
Dirk Nowitzki hefur leikið vel í fyrstu tveimur leikjunum
Eftirminnilegasti leikur gærdagsins var leikur Grikkja og Serba sem fór í framlengingu og endaði með sigri Grikkja 68-67. Með sigrinum tryggðu Grikkir sig áfram í næstu umferð en Serbar, sem hafa tapað báðum leikjum sínum á mótinu verða að sigra Ísrael til þess að komast áfram. Tony Parker leiddi Frakka til sigurs gegn Ítalíu þegar hann skoraði 36 stig af 69 stigum Frakklands. Lokatölur voru 69-62 eftir spennandi leik. Þjóðverjar unnu stórsigur á Tyrkjum 79-49 í leik sem fyrirfram var talið að yrði meira spennandi. Tyrkir hafa leikið illa í fyrstu tveimur leikjum sínum á meðan Þjóðverjar hafa leikið vel. Dirk Nowitzki skoraði 24 stig í leiknum í gær og er stigahæstur á mótinu með 29,5 stig að meðaltali í leik. Hægt er að lesa umfjöllun um leikina, skoða tölfræði og myndir úr leikjunum á heimasíðu mótsins. |