S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.9.2007 | 10:57 | oddur | Landslið
Ísland mætir Austurríki á miðvikudag
Benjamin Ortner í leik gegn Íslandi síðasta haust (fibaeurope.com)
Með sigri á morgun getur Ísland komist upp fyrir Austurríkismenn og í þriðja sæti riðilsins. Íslenska liðið tapaði fyrir Austurríki í fyrri umferðinni 85-64 þar sem Austurríkismenn stungu af á seinustu mínútum leiksins. Benjamin Ortner var mjög erfiður við að eiga í þeim leik en hann skoraði 32 stig, tók 13 fráköst og varði 7 skot í leiknum. Það má segja að Ortner og Bernd Volcic, sem skoraði 28 stig gegn okkur í Austurríki, séu aðalmenn liðsins en þeir eru báðir 205 cm á hæð og sterkir undir körfunni. Íslensku strákarnir hafa sýnt í síðustu leikjum að þeir geta varist gegn hávaxnari mönnum og ættu því að vera klárir í slaginn á morgun. Við hvetjum alla til að mæta í Laugardalshöllina á morgun og styðja íslenska landsliðið til sigurs. Hægt er að kaupa miða á midi.is eða á eftirtöldum stöðum: Skífan Laugavegi Skífan Kringlunni Skífan Smáralind BT Akureyri BT Akranes BT Egilsstaðir BT Hafnarfjörður BT Ísafjörður BT Selfoss |