S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31.8.2007 | 15:06 | oddur
Scaniacup
Erik Lindell framkvæmdastjóri mótsins og Scaniavinir hafa samið um að þau strákalið sem lenda í tveimur efstu sætunum og það stelpulið sem lendir í fyrsta sæti á Íslandsmótinu fái sjálfkrafa boð á mótið. Einnig er búið að skilgreina ákveðinn glugga fyrir önnur frambærileg lið. Scaniavinir eru jafnréttissinnar á íþróttasviðinu. Þrátt fyrir það meta þeir stöðuna þannig að íslensk kvennalið verðskuldi aðeins eitt lið í hverjum flokki. Í töflunni hér að neðan sést hvaða lið hafa fengið boð vegna næsta móts. Þessi félög hafa frest til 20. september nk. til að staðfesta þátttöku, sem má gera með því að hafa samband við Scaniavini. Þau félög sem þiggja boðið fá formlegt boð frá mótstjóra Scania Cup stuttu síðar. Scaniavinir sáu um boðunina og boðið var ýmist sent á forsvarsmenn félags og/eða þjálfara viðkomandi flokka. Þau lið sem telja sig ekki hafa fengið boð geta haft samband við Scaniavini. Strákar – lið eitt Strákar – lið tvö Stelpur – lið eitt 1996 ka.1 Haukar ka.2 UMFG kv.1 Keflavík 1995 ka.1 Breiðablik ka. 2 Stjarnan kv.1 UMFG 1994 ka.1 KR ka.2 Þór (Þorlákshöfn) kv.1 Keflavík 1993 ka.1 Keflavík ka.2 Breiðablik kv.1 Keflavík 1992 ka.1 UMFN ka.2 Fjölnir kv.1 Haukar 1990-1991 ka.1 KR ka.2 Breiðablik kv.1 Haukar |