S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
30.7.2007 | 13:47 | oddur | Landslið
Æfingar hefjast hjá A-landsliði karla í kvöld
Ísland mun mæta Finnlandi 25. ágúst (mynd: Snorri Örn)
Liðið mun leika fjóra landsleiki í haust, þar af verða tveir á heimavelli. Ísland mun mæta Finnlandi á útivelli laugardaginn 25. ágúst. Miðvikudaginn 29. ágúst mun liðið svo mæta Georgíu í Laugardalshöll. 1. september verður leikið gegn Lúxemborg á útivelli og lokaleikur liðsins verður gegn Austurríki miðvikudaginn 5. september í Laugardalshöll. Heimaleikir liðsins munu hefjast klukkan 20:15. Landsliðið mun æfa á fullu fram á fimmtudag en taka svo stutta pásu fram yfir helgina. Þriðjudaginn 7. ágúst mun liðið svo halda áfram æfingum og æfa stíft fram að fyrsta leik. Æfingaáætlun vikunnar: Mán. 30. júlí Akademía kl. 18 – 20 Þri. 31. júlí Akademía kl. 18 – 20 Mið. 1. ágúst Grindavík kl. 18 – 20 Fim. 2. ágúst Akademía kl. 18 – 20 |