S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
10.7.2007 | 12:43 | oddur
Bandaríkin heimsmeistarar U-21 kvenna
Lið Bandaríkjanna fagnar heimsmeistartitlinum (mynd: FIBA.com)
Lokatölur leiksins urðu 96-73 fyrir Bandaríkin. Þær byrjuðu leikinn mjög vel og virtust ætla að vinna auðveldan sigur í leiknum. Staðan var 75-56 eftir þriðja leikhluta eftir að Dewanna Bonner skoraði úr sniðskoti. Lið Ástralíu, sem að tapaði fyrir Bandaríkjunum með aðeins tveimur stigum í riðlakeppninni, náði þó að byrja fjórða leikhlutann af miklum krafti. Þær skoruðu 11 stig í röð og minnkuðu muninn í 8 stig þegar rúmlega sex mínútur voru eftir af leiknum. Bandaríska liðið náði að herða vörnina eftir þetta og það dugði þeim til sigurs í leiknum. Crystal Langhorne átti frábæran leik fyrir Bandaríkin en hún skoraði 23 stig og tók 14 fráköst. Stigaskorið dreifðist vel hjá Bandaríska liðinu en þrjár aðrar stúlkur skoruðu 14 stig. Jenna O´Hea var best af Áströlunum með 23 stig og 8 fráköst. Frakkar tryggðu sér bronsverðlaunin þegar þær unnu Rússa 67-61. |