© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.6.2007 | 17:11 | oddur
Stórleikir á Spáni í kvöld
Juan Carlos Navarro hefur leikið vel fyrir Barcelona
Í kvöld mun koma í ljós hverjir munu mætast í úrslitum ACB deildarinnar á Spáni.

Topplið deildarinnar Tau Ceramica mætir liði Barcelona á heimavelli sínum. Barcelona, sem að voru í fjórða sæti deildarinnar, komust 2-1 yfir í einvíginu en Tau náði að jafna metin í síðasta leik.

Í hinni viðureigninni mætast Real Madrid og DKV Joventud. Real varð í öðru sæti deildarinnar í vetur og Joventud í því þriðja. Real Madrid náði, líkt og Tau Ceramica, að jafna einvígið og tryggja sér oddaleik með sigri í síðasta leik.

Þarna mætast fjögur efstu lið spænsku ACB deildarinnar, sem er af mörgum talin ein sú sterkasta í Evrópu. Þetta eru því sannkallaðir stórleikir og það verður mjög áhugavert að sjá hverjir komast í úrslitin.

Í liðunum eru margir þekktir leikmenn. Þar má m.a. nefna menn eins og Juan Carlos Navarro, Luis Scola, Ricard Rubio, Axel Hervelle og Felipe Reyes.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið