S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
7.6.2007 | 21:24 | SÖA | Landslið
Öruggur sigur á gestgjöfunum
Páll Axel átti góðan leik
Leikurinn í kvöld þróaðist eins og aðrir leikir Íslands á mótinu hingað til, nema ef vera kynni fyrstu mínútur leiksins. Eftir jafnræði fyrstu mínúturnar, þar sem Mónakó var með forystuna 8-10, tóku Íslendingar við sér, skoruðu 21 stig í röð og breyttu stöðunni í 29-10. Heimamenn náðu að minnka muninn fyrir lok fyrsta leikhluta í 29-17, en komust aldrei nær. Eins og áður sagði voru lokatölur 86-65, en sigurinn í kvöld þýðir að leikur Íslands og Kýpur á laugardag er þá úrslitaleikur mótsins. Sigurður Ingimundarson þjálfari Íslands dreifði spilatímanum mjög vel í kvöld, sem og í hinum leikjunum. Staðan í riðlinum Ísland-Mónakó 86-65 (29-17, 45-31, 65-52) Brenton Birmingham 19 stig (2/2 í þriggja, 5/6 í tveggja, 3 stolnir) Páll Axel Vilbergsson 17 stig (5/8 í þriggja, 5 fráköst) Hreggviður Magnússon 12 stig Helgi Már Magnússon 9 stig (4 fráköst) Logi Gunnarsson 9 stig Brynjar Björnsson 8 stig Hörður Axel Vilhjálmsson 5 stig (6 stolnir) Þorleifur Ólafsson 3 stig Friðrik E. Stefánsson 2 stig (9 fráköst) Jóhann Árni Ólafsson 2 stig Kristinn Jónasson (5 fráköst) og Magnús Gunnarsson (4 fráköst) náðu ekki að skora. Tölfræði hinna leikjanna er nú komin á netið. Ísland-Andorra Ísland-Lúxemborg |