S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
7.6.2007 | 11:30 | SÖA | Landslið
Ísland mætir Mónakó
Logi hefur leikið vel í fyrstu tveimur leikjunum
Ísland og Mónakó hafa mæst þrisvar sinnum, öll skiptin á Smáþjóðaleikum. Fyrst mættust liðin einmitt á Smáþjóðaleikunum í Mónakó 1987, en þá höfðu heimamenn betur, 75-80. Ísland vann svo næstu tvær viðureignirnar með 10 stigum og nú síðast á Smáþjóðaleikunum í San Marínó með 37 stigum. Það er þó ljóst að sagan er ekki hliðholl Íslandi og er það því undir strákunum komið að halda áfram á sömu braut og hirða sigur af heimamönnum. Mónakó hefur ekki farið vel af stað á heimavelli. Á fyrsta keppnisdegi mótsins töpuðu þeir fyrir sterku liði Kýpur og í gærkvöldi töpuðu þeir gegn San Marínó. Það má þó ekki vanmeta Mónakó á heimavelli þeirra. Vinni Ísland sigur í kvöld verður leikurinn gegn Kýpur á laugardag hreinn úrslitaleikur, það er því að miklu að keppa. |