S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
6.6.2007 | 9:24 | oddur
Roma tapaði eftir þrjár framlengingar
Jón Arnór Stefánsson lék vel í gær (mynd: virtusroma.it)
Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn 84-84 og þurfti því að framlengja. Jón Arnór, fékk sína 5 villu í fyrstu framlengingunni og þurfti því að yfirgefa völlinn. Hann lék vel í leiknum og skoraði 6 stig á 16 mínútum. Dejan Bodiroga átti góðan kafla fyrir Roma þegar hann skoraði 8 stig á mjög skömmum tíma og tryggði þar með aðra framlengingu. Leikurinn var hnífjafn í henni líka og því þurfti að framlengja í þriðja sinn. Í þriðju framlengingunni voru leikmenn liðanna farnir að týnast út af með 5 villur en Montepaschi Siena náði að knýja fram sigur að lokum. Þeir eru því með 2-1 forystu í einvíginu eftir þennan magnaða leik. Næsti leikur verður á fimmtudagskvöldið á heimavelli Roma. Hægt er að lesa nánar um leikinn á heimasíðu KR |