© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.6.2007 | 14:44 | oddur
Strákunum líður vel í Mónakó
A-landslið karla kom til Mónakó um hálf tíu leitið að staðartíma í gærkvöldi eftir um það bil 13 klst ferðalag. Bjartsýni og ánægja er í íslenska hópnum og setur liðið markið hátt fyrir þessa leika.

Lagt var af stað klukkan 5:00 að íslenskum tíma úr Laugardal. Flogið var til Milano og svo keyrt þaðan til Mónakó.
Íslenski hópurinn gistir á skemmtiferðaskipi í höfninni í Mónakó með öllum þátttakendunum á Smáþjóðaleikunum.

Fyrsta æfingin hjá liðinu var í morgun og gekk vel. Leikmenn og þjálfarar voru ánægðir með aðstöðuna í Mónakó. Í dag mun liðið svo safna orku fyrir fyrsta leikinn sem að verður á morgun klukkan 13:30 að íslenskum tíma. Þá munu strákarnir mæta Andorra.

Opnunarhátíðin verður í kvöld klukkan 19:00 að íslenskum tíma.

Fjölmiðlamenn frá RÚV og mbl eru í Mónakó og ætla að gera smáþjóðaleikunum góð skil á sýnum miðlum. Einnig verður hægt að fylgjast með gangi mála á heimasíðu mótsins og að sjálfsögðu á kki.is.

Leikjaplan íslenska liðsins:

Þriðjudagur 5. júní kl. 13:30 Ísland-Andorra
Miðvikudagur 6. júní kl. 16:00 Ísland-Lúxemburg
Fimmtudagur 7. júní kl. 18:30 Ísland-Mónakó
Föstudagur 8. júní kl. 16:00 Ísland-San Marinó
Laugardagur 9. júní kl. 13:00 Ísland-Kýpur

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá 40 ára afmælishófi KKÍ 25. febrúar 2001.  Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, með formanni ritnefndar sögu KKÍ, Gunnari Gunnarssyni, og ritstjóra bókarinnar, Skapta Hallgrímssyni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið