© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.5.2007 | 9:33 | oddur
Körfuboltabúðir Keith Vassell
Keith Vassell í leik með ÍR í úrslitakeppninni í vor
Nú styttist í körfuboltabúðir Keith Vassell sem verða í íþróttahúsinu við Austurberg vikurnar 11-15 og 18-22 júní.

Keith hélt tvö körfuboltanámskeið í samvinnu við ÍR sl vetur og voru þau vel skipulögð með topp leiðbeinendum. Vinsældir þeirra námskeiða er sprettan af þessum körfuboltabúðum í Austurbergi. Námskeiðin eru tvískipt, annars vegar fyrir 8-11 ára krakka og hins vegar fyrir 12-15 ára krakka. Strákar og stelpur eru jafnvelkomin.

Í fyrri vikunni (11-15 júní) verður farið yfir öll helstu undirstöðuatriði körfuboltans.

Á morgnana er eftirfarandi æft:
1. Skot
2. Vörn
3. Sóknarhreyfingar
4. Knattrak
Eftir hádegi er mikið af leikjum og alls konar fjör.

Seinni vikan (18-22 júní) verður eins konar hátíðardagskrá á hverjum degi. Á morgnana verða æfingabúðir en eftir hádegi verða sérstakir viðburðir:

Mánudagur: Hæfileikakeppnir (Skills competitions)
Þriðjudagur: Skotkeppni (Shooting contests)
Miðvikudagur: Mót 3 á 3 (3 og 3 Tournament)
Fimmtudagur: Áskorendakeppni 1 á 1 (1 on 1 challenge)
Föstudagur: Stjörnuleikur (All-Star game)

Mikilvægar upplýsingar um körfuboltabúðirnar:
• Frá kl. 9-15 í Austurbergi vikurnar 11-15 og 18-22 júní
• Fyrir krakka fædda 1996-1999
• Fyrir unglinga fædda 1992-1995
• Hver dagur kostar 2.000 kr. nema keypt sé heil vika, þá 8.500 kr.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu körfuboltabúða Keith Vassell.

Skráning fer fram á heimsíðu ÍR og á heimasíðu körfuboltabúðanna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson, Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson taka fund fyrir bikarleik Grindavíkur og Snæfells þann 26. nóvember 2006, leik sem jafnframt var 1000. KKÍ leikur Rögnvaldar á ferlinum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið