S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
16.5.2007 | 16:00 | OOJ
Hægt að fylgjast með krökkunum í beinni á netinu
Íslensku krakkarnir ætla að láta finna fyrir sér á NM. Mynd: Snorri Örn
Það er hægt að fylgjast með gangi mála í leikjunum í beinni á netinu en á heimasíðu sænska körfuboltasambandsins verður send út bein textalýsing með tölfræði leikjanna. Það er hægt að nálgast hana hér en þar nýta Svíarnir sér tölfræðiforrit Fibaeurope þar sem er hægt að sjá hver skorar, tekur fráköstin eða reynir skot á körfuna aðeins nokkrum sekúndum eftir að það gerist í Solnahallen. Á hverri stundu er jafnframt hægt að fylgjast með hverjir eru inn á vellinum, hver staðan sé og hvað sé mikið eftir af leiknum. Það geta því allir fylgst vel með gangi mála hjá íslensku landsliðinum á Norðurlandamótinu í ár. Þeir sem vilja fá upplýsingar um dagskránna eða nálgast úrslita allra leikja á mótinu er bent á úrslitasíðu sænska körfuboltasambandsins en hana má finna hér. Heimsíðan mun síðan að sjálfsögðu koma með frekari fréttir af leikjunum seinna í kvöld sem og að ætlunin er að birta á síðunni myndir frá leikjum allra íslensku liðanna á Norðurlandamótinu. Snorri Örn Arnaldsson er mættur út með myndavélina líkt og í fyrra og hann ætlar að reyna að fanga skemmtileg augnablik frá baráttu íslensku krakkanna við jafnaldra þeirra á Norðurlöndum. Myndin er af Arnþóri Guðmundssyni, leikmanni Fjölnis og 16 ára landsliðs karla. |