S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
12.5.2007 | 20:07 | RG
Fréttir af þingi FIBA Europe
Helstu mál þingsins eru þau að fjárhagsstaða sambandsins er mjög góð og spurning hvenær sambandið fer að greiða aðildarsamböndum líkt og gert er í knattspyrnunni en það skiptir þjóð eins og Ísland miklu máli, sérstaklega í ljósi stöðunnar eins og hún er nú. Á þinginu voru Spánverjar og Ítalir með kynningar á Evrópukeppnum sem fram fara í haust en úrslit Evrópukeppni karlalandsliða fara fram á Spáni og kvenna á Ítalíu í haust. Miguael Betancor yfirmaður dómaramála var svo með kynningu á nýju verkefni sem FIBA Europe er með í gangi en það er stafræn leikskýrsla (digital scoresheet). Einnig var ákveðið að hætta með EuroCup Challenge sem hefur farið fram undanfarin á og Keflavík og Njarðvík hafa tekið þátt í en í stað hennar verður forkeppni fyrir EuroCup. Stjórn FIBA Europe ákvað á fundi sínum sem fór fram samhliða þinginu að úrslit Evrópukeppni kvennalandsliða fari fram í Lettlandi árið 2009 sem og að sambandið mun tryggja alla leikmannasamninga vegna landsliða á sinn kostnað. |