© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.4.2001 | 16:37 | BL
Lokahóf - Ársþing - Golfmót
Nú þegar keppnistímabilinu er í þann vegin að ljúka er ekki þar með sagt að ekkert sé framundan. Nú liggja fyrir dagsetningar á einstökum viðburðum í vorstarfi KKÍ.

Lokahóf KKÍ verður haldið á Broadway föstudaginn 20. apríl nk. Körfuknattleiksmenn eru hvattir til að fjölmenna á hófið, en þar verða verðlaun til einstaklinga sem skarað hafa fram úr í vetur efhent, auk skemmtiatriða.

Ásþing KKÍ verður að þessu sinni haldið í Hafnarfirði dagana 11.-13. maí nk. Ljóst er að margar tillögur að reglugerðarbreytingum verða lagðar fram á þinginu að þessu sinni. Áhugamenn um málefni körfuboltans eru velkomnir á ársþingið.

Síðast en ekki síst þá verður hið árlega golfmót KKÍ haldið á Strandarvelli við Hellu 22. júní nk. og hefst kl. 14:00. Núverandi og fyrrverrandi körfuknattleiksmenn, dómarar, stjórnarmenn og aðrir sem komið hafa nálgt körfubolta eru velkomnir í mótið.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið