© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.5.2007 | 13:57 | RG
Kosningum um hin ýmsu mál ársþings er lokið
Afgreiðslu þingskjala á Ársþingi KKÍ 2007 er nú lokið og má hér líta niðurstöðu kosninga um hvert skjal fyrir sig.

KKI.is var með lifandi uppfærslur af kosningunum.

Samþykkt fjárhagsáætlun er komin á netið.

Tillögurnar - smellið á Meira til að sjá tengilinn og aðra tengla í fréttinni.

Tuttugasta og níunda mál er þingskjal 10 - Breyting á lögum KKÍ
Samþykkt

Tuttugasta og áttunda mál er þingskjal 8 - Breyting á lögum KKÍ
Samþykkt

Tuttugasta og sjöunda mál er þingskjal 4 - Breyting á lögum KKÍ
Samþykkt.

Tuttugasta og sjötta mér er þingskjal 3 - Breyting á lögum KKÍ
Allsherjanefnd leggur til breytingar sem má lesa hér
Samþykkt

Tuttugasta og fimmta mál er þingskjal 2 - Breyting á lögum KKÍ
Samþykkt

Tuttugasta og fjórða mál er þingskjal 21 - Tillaga um reglugerð um Dómarasjóð KKÍ
Samþykkt

Tuttugasta og þriðja mál er þingskjal 20 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Lagðar til breytingar smávægilegar breytingar.
Samþykkt.

Tuttugasta og annað mál er þingskjal 26 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Samþykkt.

Tuttugasta og fyrsta mál er þingskjal 16 - Breyting á reglugerð um félagaskipti.
Samþykkt án breytinga.

Tuttugasta mál er þingskjal 22 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Fellt.

Nítjánda mál er þingskjal 14 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Lagðar til breytingar og má lesa tillöguna í heild hér
Samþykkt þannig.

Átjánda mál er þingskjal 11 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Laganefnd leggur til breytingar um að stjórn fía heimild til að breyta nöfnum líka í 1. deild og 2. deild
Samþykkt þannig.

Sautjánda mál er þingskjal 9 - Breyting um reglugerð um landsliðsnefnd.
Samþykkt óbreytt

Sextánda mál er þingskjal 29 - Breyting á reglugerð um venslasamninga
Hér er ný tillaga sem ekki er í tillögu pakkanum, kemur í raun í stað þingskjals 17. Hana má finna hér
Samþykkt svo.

Fimmtánda mál er þingskjal 17 - Breyting á reglugerð um venslasamninga
Ekki samþykkt.

Fjórtanda má er þingskjal 24 - Breyting á reglugerð um unglinganefnd.
Samþykkt óbreytt

Þrettánda mál er þingskjal 23 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksdmót.
Laganefnd leggur til að í stað samdægurs komi "innan tveggja sólarhring frá mótslokum"
Samþykkt með breytingum.

Tólfta mál er þingskjal 19 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksdmót.
Laganefnd leggur til að tillagana hljóði svo
"Það félag sem hefur umsjón með móti í yngri flokkum skal leitast við að tefla fram dómurum em hafa til þess tilskiln réttindi og eru í dómarabúning. Unglingadómarar fá metna þá leiki sem þeir dæma í yngri flokkum til greiðslu úr dómarasjóði KKÍ. Stjórn dómarasjóðs sér um úthlutun greiðslu úr sjóðnum til unglngadómara."

Samþykkt þannig.

Ellefta mál er þingskjal 25 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksdmót.
Laganefnd leggur til að bætt verði við "þegar að miðað er við sjö leikjagæstu leimenn A-liðs skal miða við spilaður mínútur að meðaltali en ekki spilaða leiki" í samræmi við þingskjal 18.
Samþykkt þannig.

Tíunda mál er þingskjal 18 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksdmót.
Laganefnd leggur til að aftan við textann "spilaðar mínútur" komi að meðaltali.
Samþykkt þannig.

Níunda mál er þingskjal 15 - Breytinga á reglugerð um körfuknattleiksmót
Laganefnd leggur til að málinu verði vísað til stjórnar.
Samþykkt en stjórn falið að útfæra tæknilegu hliðina.

Áttunda mál er þingskjal 13 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Lagt til að breyta seinni málsgrein hljóði svo "Fjöldi liða í riðlunum skal ákveða þannig. Aldrei skulu vera fleiri en 5 lið í riðli og ekki færri en 3."

Samþykkt þannig.

Sjöunda mál er þingskjal 12 - Breyting á reglugerð um dómaranefnd
Samþykkt óbreytt.

Sjötta mál er þingskjal 7 - Breyting á reglugerð fyrir mótanefnd
Samþykkt óbreytt.

Fimmta mál er þingskjal 6 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Samþykkt óbreytt.

Fjórða mál er þingskjal 5 - Breyting á reglugerð um aganefnd
Samþykkt óbreytt.

Þriðja mál er þingskjal 1 - Breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót
Samþykkt óbreytt.

Annað má er þingskjal 28 - Fjárhagsáætlun.
Fjárlaganefnd leggur til breytingar og var málið samþykkt þannig.

Fyrsta mál er þingskjal 27 – Tillaga um þátttökugjöld í Íslandsmóti.
Fjárlaganefnd lagði til breytingar og var það samþykkt svo
Efsta deild karla: 200.000
Efsta deild kvenna: 150.000
1. deild karla: 150.000
2. deild kvenna: 75.000
2. deild karla: 75.000
Yngri flokkar: 20.000
Þátttökugjöld í bikarkeppni verða óbreytt

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Baldur Ólafsson átti eftirminnilega endurkomu í lið KR í úrslitaseríunni.  Hér er hann við það að troða yfir Igor Beljanski Njarðvík í fyrsta leik liðanna. Allir sem sáu leikinn muna eftir þessu atviki öðrum fremur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið