© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.5.2007 | 7:13 | oddur
Fjögurra liða úrslit í Euroleague í dag
Luis Scola í leik með Tau Ceramica
Í dag verða fjögurra liða úrslit í Evrópudeildinni leikin í Aþenu, höfuðborg Grikklands.

CSKA Moskva og Unicaja Malaga mætast klukkan 14:30 í fyrri leik dagsins. Seinni leikurinn er á milli heimamanna í Panthinaikos og Tau Ceramica frá Spáni og hefst hann klukkan 17:30.

Allt eru þetta stjörnum prýdd lið. Þar má nefna leikmenn eins og Luis Scola, Theodoros Papaloukas, Jiri Welsch, Oscar Torres, Tony Delk og marga fleiri.

Luis Scola, segir í viðtali að hann og liðsfélagar sínir í Tau Ceramica séu bjartsýnir fyrir leikinn í dag þrátt fyrir að þurfa að leika gegn heimamönnum. Scola hefur áður unnið stóra sigra á þessum leikvangi en hann varð Ólympíumeistari með Argentínu í O.A.K.A. höllinni árið 2004.

Ettore Messina, þjálfari CSKA Moskvu, segir í viðtali á heimasíðu FIBA að þrátt fyrir að margir telji líklegt að CSKA komist í úrslit þá megi alls ekki vanmeta lið Unicaja Malaga. CSKA var ekki talið líklegt til þess að sigra í fyrra en tókst það engu að síður ásamt því að vinna Rússneska titilinn.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Feðgarnir Jón Otti og Jón Otti fá hér þakkir frá Valsmönnum vegna Valsdagsins 1976.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið