S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
30.4.2007 | 20:11 | oddur
Víkurfréttir fengu fjölmiðlaverðlaun KKÍ
Páll Ketilsson, ritstjóri og eigandi Víkurfrétta, tók við verðlaununum.
Hannes S. Jónsson sagði við afhendingu verðlaunanna að umfjöllun um körfuknattleik hefði almennt verið góð í vetur. Þar má nefna frábærar útsendingar hjá Sýn frá úrslitakeppni karla og beina útsendingu RÚV frá fjórða leik í úrslitum kvenna. Hannes tók fram að umfjöllun um körfubolta skipti hreyfinguna gríðarlega miklu máli. Víkurfréttir hafa lengi fjallað vel um körfubolta. Umfjöllunin í ár var þó framúrskarandi. Ítarleg umfjöllun um leiki, fjölmörg viðtöl og skemmtilegar vídeóklippur að ógleymdum sérlega glæsilegum ljósmyndum blaðamanna Víkurfrétta lyfti þeim skör hærra. Víkurfréttir sinntu öllum aldursflokkum á þessu tímabili til dæmis var bikarkeppni yngri flokka gerð mjög góð skil sem og mótum eins og Samkaupsmótinu. KKÍ ákvað því að veita Víkurfréttum fjölmiðlaverðlaunin að þessu sinni. (mynd: Snorri Örn Arnaldsson, http://www.flickr.com/photos/snorriorn) |