S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
26.4.2007 | 19:50 | oddur
Reykjavíkurborg heiðraði meistarana
![]() Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri Reykjavíkur, óskaði liðunum til hamingju með frábæran árangur. Borgarfulltrúar voru ánægðir með það að Reykjavíkurliðin hefðu náð að sigra tvo stærstu titlana. Vilhjálmur borgarstjóri á afmæli í dag 26.apríl og sungu viðstaddir afmælissönginn undir styrkri stjórn Gísla Marteins Baldurssonar borgarfulltrúa. Í boðinu tilkynnti Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs og ÍTR, að til standi að byggja nokkra nýja úti-körfuboltavelli á höfuðborgarsvæðinu, svipaða þeim sem að eru við Holtaskóla í Reykjanesbæ. Björn Ingi sagði að mikill áhugi væri fyrir körfuknattleik í landinu um þessar mundir og að Reykjavíkurborg fyndi fyrir mikilli uppsveiflu íþróttarinnar. Bygging vallanna yrði eflaust mikil lyftistöng fyrir körfuboltann á höfuðborgarsvæðinu. Einnig var sagt frá því að parket verður sett í DHL-höll KR-inga í sumar og að í framtíðinni munu ný íþróttahús sem að borgin byggir verða með parketgólfi. Til stendur að byggja nýtt og glæsilegt íþróttahús í Mjóddinni sem að ÍR-ingar munu hafa afnot af og þar hefur verið ákveðið að hafa parket. Þetta eru mikil gleðitíðindi og verður eflaust til framdráttar fyrir körfuknattleikinn. |