S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
25.3.2007 | 16:20 | FÍR
Háskólaboltinn heldur áfram í dag
Greg Oden átti nokkrar skrímslatroðslur í gær
Ohio State unnu Memphis 92:76 UCLA unnu Kansas í svakalegum varnarleik þar sem liðin voru samtals með 32 stolna bolta. Kansas spiluðu mjög góðan varnarleik en það dugði ekki til þar sem UCLA léku stórkostlegan varnarleik. 68:55 Í kvöld kemur svo í ljós hvaða lið bætast í hópinn fyrir Final Four næsta laugardag. Klukkan 18:40 mætast Oregon og Florida sem eru núverandi meistarar. Klukkan 21:05 mætast svo North Carolina og Georgetown Það eru margir sem bíða spenntir eftir þessari viðureign þar sem einn frægasti leikur sögunnar var einmitt á milli þessara liða þegar Michael nokkur Jordan skoraði sigurkörfuna í úrslitum háskólaboltans gegn Georgetown árið 1982. Það skemmtilega við þennan leik núna er að Roy Williams aðalþjálfari North Carolina í dag var aðstoðarþjálfari 1982, John Thompson lll sem er aðalþjálfari Georgetown í dag er sonur John Thompson sem þjálfaði Georgetown 1982. Einn af bestu leikmönnum Georgetown í dag er leikmaður sem heitir Patrick Ewing, það nafn er eitthhvað kunnuglegt þegar minnst er á Georgetown og körfubolta en faðir hans Patrick Ewing lék einmitt með Georgetown þennan fræga úrslitaleik 1982. Það er kannski ekki skrýtið að fjölmiðlar ytra séu á flugi vegna þessa leiks. |