S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
8.3.2007 | 13:42 | oddur
Lokaumferð Iceland Express deildar karla í kvöld
Fjölnir mætir Tindastóli í Grafarvogi. Ef að Fjölnir nær að sigra og Þór Þorlákshöfn tapar gegn Njarðvík þá heldur Fjölnir sér í deildinni. Það er því gríðarlega mikið í húfi fyrir Fjölni og hafa þeir kynnt leikinn vel í Grafarvoginum og stefna á að fylla húsið í kvöld. Fyrri leikur liðanna í vetur fór 96-84 fyrir Tindastól. Hægt er að lesa meira um leikinn á heimasíðu Fjölnis. Í Þorlákshöfn taka heimamenn í Þór á móti deildarmeisturunum frá Njarðvík. Ef að Þórsarar sigra þá tryggja þeir sér sæti í Iceland Express deildinni á næsta tímabili. Fyrri leikur liðanna var æsispennandi og endaði með sigri Njarðvíkinga 105-100eftir framlengingu. Skallagrímur tekur á móti ÍR í Borgarnesi. Skallagrímur er í baráttu um 2. sæti deildarinnar en ÍR-ingar eru öruggir með 7. sætið. ÍR sigraði fyrri leik liðanna 95-82. Í Keflavík verður stórleikur þegar Snæfell kemur í heimsókn. Keflvíkingar þurfa að sigra til þess að tryggja sig í 5. sæti deildarinnar en Snæfell er í baráttu um að halda 3. sætinu. Síðasti leikur liðanna endaði 80-67 fyrir Snæfell. Í DHL-Höllinni mætast KR og UMFG. KR-ingar tryggja sér 2. sæti deildarinnar með sigri í leiknum en UMFG á möguleika á að komast upp fyrir Keflavík ef að þeir ná að sigra í kvöld. Fyrri viðureign liðanna endaði með sigri KR 78-89. Í Hafnarfirði taka Haukar á móti Hamar/Selfoss. Fyrri leikur liðanna í vetur endaði með sigri Hamars/Selfoss 99-86. Nánari umfjöllun um leiki kvöldsins er að finna hér. Staðan í deildinni. |