© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.3.2007 | 21:06 | oddur
Úrslit kvöldsins í Iceland Express deildunum
Tyson Patterson skoraði 21 stig gegn Tindastól (mynd: vf.is)
Leikjum kvöldsins er nýlokið í Iceland Express deildum karla og kvenna. Breiðablik, UMFG og KR sigruðu leiki sína.

Breiðablik náði loksins að sigra ÍS í Iceland Express deild kvenna. Þetta var fjórði leikur liðanna í vetur og höfðu tveir þeirra verið nokkuð jafnir. Lið Breiðabliks hefur verið að bæta sig í síðustu leikjum og náði að sigra í leiknum 75-82. Victoria Crawford var stigahæst hjá Breiðablik með 41 stig.

Grindavík sigraði Keflavík 116-99 í Grindavík. Grindvíkingar eru því aðeins 2 stigum á eftir Keflavík í Iceland Express deildinni.

Á Sauðárkróki náði KR í mikilvægan útisigur gegn Tindastól 81-99. Þeir eru því komnir í annað sæti deildarinnar með tveimur stigum meira en Skallagrímur og Snæfell.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Keflavík · Íslandsmeistarar í Unglingaflokki karla 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið