S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.3.2007 | 15:14 | oddur
4 leikir í Iceland Express deild karla í kvöld
Í Njarðvík taka heimamenn á móti botnliði Hauka. Njarðvíkingar munu fá deildarbikarinn afhentann eftir leikinn og bjóða öllum frítt á leikinn. Haukar verða að sigra ætli þeir sér að eiga möguleika á því að halda sér í deildinni. Fyrri leikur liðanna fór 99-104 fyrir Njarðvík. ÍR tekur á móti Þór Þorlákshöfn í Seljaskóla. Þór Þorlákshöfn er í mikilli baráttu á botni deildarinnar en geta lagað stöðu sína töluvert með því að sigra í þessum leik. Þórsarar sigruðu í fyrri viðureign liðanna 82-78. Midi.is býður frítt inn á leikinn. Í Hveragerði tekur Hamar/Selfoss á móti Fjölni. Fjölnismenn þurfa nauðsynlega á stigum að halda ef að þeir ætla að ná Þór Þorlákshöfn og bjarga sér frá falli. Sigri Hamar/Selfoss tryggja þeir sér sæti í úrslitakeppninni. Hamar/Selfoss sigraði fyrri leik liðanna 83-88. Midi.is býður frítt inn á leikinn. Toppslagur umferðarinnar er viðureign Snæfells og Skallagríms í Stykkishólmi. Skallgrímur sigraði fyrri leik liðanna í Borgarnesi 83-77 og þarf Snæfell því að sigra leikinn með 7 stigum til þess að komast upp fyrir Skallagrím. |