© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.2.2007 | 9:30 | FÍR
18. umferð í Iceland Express deild karla hefst í kvöld
Það verður svakalegur leikur í DHL höllinni þegar ÍR kemur í heimsókn
Nú fer að síga á seinni hluta deildarkeppninnar í Iceland Express deild karla.

Liðin eiga 5 leiki eftir og óhætt er að segja að spennan sé orðin alveg hrikaleg. Það er algerlega vonlaust að spá um endanlega niðurröðun liða og allt getur gerst. Deildarkeppnin hefur aldrei verið svona jöfn.

Lokahrinan hefst í kvöld með fjórum leikjum.

Í Grindavík mætast heimamenn og Tindastóll. Grindavík vann fyrri leik liðanna á Króknum 82:101

Í Grafarvogi mætast Fjölnismenn Þórsurum frá Þorlákshöfn. Þór vann fyrri leikinn 97:95 í háspennuleik.

Í Stykkishólmi verða Hamar/Selfoss í heimsókn til etja kappi við Snæfell. Snæfell vann fyrri leik liðanna í Hveragerði 77:79 í svakalegum leik.

Loks verður slagur Reykjavíkurrisana þegar KR fær nýbakaða Lýsingarbikarmeistara ÍR í heimsókn. KR vann nokkuð öruggan sigur í fyrri umferðinni 66:81

Hvetjum alla til að velja einn af þessum frábæru leikjum, spennan verður ekki meiri en þetta.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið Íslands sem tók þátt í Evrópukeppninni í Antalya í Tyrklandi árið 1976. Frá vinstri: Steinn Sveinsson, fararstjóri, Örn Þórisson, Fram, Birgir Thorlacius, Fram, Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, Ómar Þráinsson, Fram, Þórir Einarsson, Fram, Pétur Guðmundsson, Val, Þorvaldur Geirsson, Fram, Óskar Baldursson, Breiðabliki, Erlendur Markússon, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson, Val, Sigurjón Ingvarsson, Fram og Gunnar Gunnarsson, þjálfari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið