© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.2.2007 | 15:41 | FÍR
Jón Arnór á leið til Rómar
Jón Arnór að fagna bikarmeistaratitlinum með Napoli á síðustu leiktíð
Jón Arnór var rétt í þessu að ganga frá samningi til ársins 2008 við Lottomatica Roma frá Ítalíu.

Jón Arnór fer til Rómar í fyrramálið en stefnt er að því að hann leiki með sínu nýja félagi í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag en þá taka Rómverjar á móti Pau Orthez frá Frakklandi.

Meistaradeild Evrópu er gríðarlega stór og vinsæl um alla Evrópu og víðar í heiminum, enda eru margir af bestu leikmönnum heims að leika með liðum þar.

Þjálfari og forráðamenn Lottomatica Roma lögðu á það mikla áherslu að ná í Jón þar sem þeir þekkja vel til hans en hann varð m.a. bikarmeistari með Napoli á síðustu leiktíð á Ítalíu. Hjá Roma hittir hann fyrir marga snjalla leikmenn eins og til að mynda Dejan Bodiroga sem hefur verið talinn besti leikmaður Evrópu til margra ára, margfaldur meistari með félagsliðum og Júgóslavíu og Serbíu síðustu ár.

Heimasíða Meistaradeildarinnar er hér

Heimasíða Roma er hér
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ísland var sigursælt á Norðurlandamótinu árið 2004 í Solna í Svíþjóð. Þar unnu U16 kvk, U16 kk og U18 kk öll gullverðlaun.

Hér bíða fyrirliðar U18 kk og U16 kvk eftir að taka við bikarnum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið