© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.2.2007 | 9:12 | FÍR
FIBA Europe setur af stað námskeið til að efla þjálfun
FIBA Europe hefur ákveðið að setja af stað verkefni fyrir þjálfara. Næsta sumar gefst einum þjálfara frá öllum löndum innan FIBA Europe kostur á að taka þátt.

Hvert land fyrir sig velur sinn fulltrúa sem tekur þátt í 3 námskeiðum á 2 árum. Fyrsta námskeiðið verður í tengslum við Evrópukeppni U-16 ára karla A-deild sem verður í Grikklandi 24. - 30. júlí sumarið 2007. Annað námskeiðið verður sumarið 2008 í tengslum við Evrópukeppni U-18 ára karla A-deild og þriðja og síðasta námskeiðið verður í tengslum við Evrópukeppni U-20 ára karla A-deild.

Að þessu loknu hefst svo annað ferli og þá verður annar þjálfari valinn frá hverju landi. Þetta er góð leið til að auka áhuga og metnað þjálfara.

Þetta eru frábærar fréttir og eitthvað sem við munum nýta okkur í framtíðinni.


Hægt er að lesa alla greinina um þetta hér
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erlingur Hannesson, fararstjóri, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari U18 kk, stigu villtan stríðsdans þegar strákarnir í átján ára liðinu tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í Solna í Svíþjóð í maí 2009. Strákarnir lögðu Finna í úrslitaleik og þeir félgar stóðust ekki mátið og tóku villt dansspor á parketinu í Solna við mikinn fögnuð viðstaddra.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið