S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
25.1.2007 | 15:18 | oddur
Myndbrot á heimasíðum félaganna
Það er ekki amalegt að sjá Kevin Sowell troða (mynd vf.is)
KFÍ ákváðu í vetur að prófa sig áfram með beinar útsendingar frá leikjum sínum og hefur það tekist nokkuð vel hjá þeim og viðbrögð hafa komið víðs vegar að úr heiminum. Þeir stóðu í ströngu 13. janúar síðastliðinn en þá sýndu þeir frá leik Vals og KFÍ í 1. deild karla og fluttu sig svo yfir í DHL-Höllina og sýndu frá Stjörnuleikjum KKÍ. Hægt er að horfa á upptökur úr þessum leikjum á síðunni http://kfi.is/ibeinni/. Fjölnir hefur einnig haft á heimasíðu sinni, http://www.fjolnir.is/karfa/, reglulega myndbrot úr leikjum sínum. Þeir mættu einnig á Stjörnuleik KKÍ og hafa verið að birta brot úr leikjunum á síðunni. Þar má meðal annars sjá skemmtileg brot úr Stjörnuleiknum og flotta troðslu hjá Herði Axeli í leik gegn Keflavík. Þór Akureyri hefur öðru hvoru sett á síðuna sína brot úr heimaleikjum sínum. Núna nýverið settu þeir inn góð brot úr leikjum sínum gegn Breiðablik og Val. Þar má meðal annars sjá flott tilþrif frá háloftafuglinum Kevin Sowell. Hægt er að sjá þetta hér. Guðjón Þorsteinsson hefur unnið mikið við útsendingarnar hjá KFÍ og segir hann að von sé á miklum framförum á þessu sviði. Stofnkostnaðurinn sé ekki mjög mikill og eftir það sé útsendingin frekar einföld í framkvæmd. Fleiri félög hafi sýnt þessu áhuga og aldrei að vita nema fleiri bætist í hópinn á næstunni. KKÍ þakkar þessum aðilum fyrir jákvætt og skemmtilegt framlag. |