© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.1.2007 | 9:31 | oddur
Akademía hjá KR í körfu
Körfuknattleiksdeild KR mun hefja mánudaginn 15. janúar æfingar í akademíu fyrir iðkendur deildarinnar, en að auki stendur deildin fyrir Elítuæfingum sem munu halda áfram. 22 iðkendur voru boðaðir í Akademíuna.

Akademían er hugsuð fyrir efnilega og áhugasama krakka sem að eru fædd á bilinu 1986-1993. Æfingarnar munu fara fram á mánudögum og miðvikudögum fyrir skóla hjá krökkunum.

Þjálfari akademíunnar verður Finnur Freyr Stefánsson, en unnið verður eftir æfingaáætlun sem þeir Ingi Þór Steinþórsson, yfirþjálfari KR og Benedikt Guðmundsson, meistaraflokksþjálfari KR munu hanna.

Hægt er að lesa nánar um þetta á heimasíðu KR.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ingi Þór Steinþórsson sá um að stýra Mix mótinu sem haldið var á Miklatúni sunnudaginn 1. júlí 2007 og gerði það af alkunnri snilld.  Mótið var haldið í brakandi blíðu, allt fram að 8 liða úrslitum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið