S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
11.12.2006 | 10:04 | oddur
B-liðamót í Grindavík
Úr leik KR og Grindavíkur
Eins og flestir vita þá standa Suðurnesjaliðin fyrir mjög öflugu starfi í yngri flokkum stúlkna. Á baki þessu starfi standa m.a. kraftmiklir og góðir þjálfarar. Grindavíkurþjálfarinn Ellert Magnússon er einn af þessum þjálfurum. Hjá honum æfa nú um mundir um 20 stelpur í 7. flokki stúlkna. Keflvíkingurinn Erla Reynisdóttir er líka í þessum þjálfarahóp, hjá henni æfa einnig um 20 stelpur. Þessir þjálfarar mæta með stóra hópa í fjölliðamótin og leyfa mörgum leikmönnum að spreyta sig. Um helgina stóð Ellert fyrir b-liðamóti í 7. flokki stúlkna í Grindavík fyrir þær stúlkur í sínum æfingahóp sem hafa lítið fengið að spila í vetur. Ellert mætti með tvö lið í mótið og Keflavík kom með eitt. Fjórða liðið kom frá KR. Mótið heppnaðist mjög vel og mega aðrir þjálfarar og önnur félög taka þetta framtak Ellerts sér til fyrirmyndar. |