S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
10.12.2006 | 0:55 | oddur
Firma- og félagahópakeppni VALS 2006
Leikið verður í íþróttahúsi Kennaraháskólans. Leikið verður í fjórum þriggja liða riðlum á fimmtudeginum og úrslitakeppni fer fram á föstudeginum þar sem öll liðin leika a.m.k. einn leik. Aðeins 12 lið geta verið með að þessu sinni. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna „peningar“ að vanda. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Iceland Expressdeild í liðunum. Þátttökugjald er kr. 20.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Innifalið í gjaldinu eru veitingar á fimmtudeginum. Greiða má í gegnum heimabanka inn á reikning: Banki: 0101 - 26 - 3909 kt. 581181 - 0279 Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðs. Með bestu kveðju Torfi Magnússon tm@fb.is Sími: 661 8012 Frétt tekin af heimasíðu Vals: www.valur.is |