© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.11.2006 | 9:31 | oddur
Evrópuleikir í kvöld
Það mun mikið mæða á Arnari Frey í kvöld
Keflavík og Haukar leika í Evrópukeppninni í kvöld. Keflvíkingar fá Mlekarna Kunin frá Tékklandi í heimsókn og Haukar leika gegn Cran Canaria í Las Palmas.

Keflvíkingar töpuðu stórt gegn Mlekarna Kunin í fyrri leik liðanna sem fram fór í Tékklandi og því verður fróðlegt að sjá hvernig fer í kvöld. Það er nokkuð ljóst að heimamenn munu selja sig dýrt í leiknum í kvöld. Keflavík er með 1 sigur og 2 töp á meðan að Tékkarnir eru með 2 sigra og 1 tap í keppninni til þessa.

Leikur Keflavíkur og Mlekarna Kunin fer fram í Keflavík og hefst kl. 19:15.

Haukakonur eru í Las Palmas þar sem þær munu etja kappi við Cran Canaria. Þær spænsku höfðu betur 72 - 92 þegar þau léku á Ásvöllum 9.nóvember sl.

Haukar eru enn án sigurs á meðan Cran Canaria eru með 2 sigra og 1 tap.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
8.-10. flokkur stúlkna hjá Val að undirbúa sig fyrir leik á móti í Gautaborg í Svíþjóð. Valur vann leikinn 26-24. Liðið komst í b-úrslit á mótinu en gat ekki spilað úrslitaleikinn þar sem að ferðaskrifstofa liðsins gerði ekki ráð fyrir að liðið færi svona langt. Stelpurnar þurftu því að halda heim til Íslands áður en mótið kláraðist.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið