
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 24.11.2006 | 10:22 | RG Rögnvaldur dæmir sinn þúsundasta leik   Rögnvaldur Hreiðarsson dæmir sinn 1000. leik Rögnvaldur er einungis annar dómarinn í sögu íslensks körfubolta sem nær að dæma 1000 leiki á vegum KKÍ en 29. nóvember 1992 dæmdi Jón Otti Ólafsson sinn 1000. leik þegar hann dæmdi leik Breiðabliks og Hauka með Héðni Gunnarssyni. Jón Otti lagði flautuna á hilluna vorið 1994 og hafði þá dæmt 1673 leiki á vegum KKÍ. Rögnvaldur dæmdi sinn fyrsta leik 22. janúar 1995 þegar hann dæmdi leik KR og Grindavíkur í bikarkeppni stúlknaflokks með Brynjólfi Ægi Sævarssyni. Hlutirnir gengu hratt fyrir sig hjá Rögnvaldi og haustið 1996 varð hann A dómari og dæmdi sinn fyrsta leik í Úrvalsdeild í Smáranum í Kópavogi 1. október þar sem áttust við Breiðablik og Haukar. Í þeim leik var meðdómari Rögnvaldar lærimeistari hans frá dómaranámskeiðinu Kristinn Óskarsson sem einmitt dæmir leikinn á sunnudag með honum. Í liði Breiðabliks fékk Erlingur Snær Erlingsson eina villu en hann lagði seinna skóna á hilluna og dró flautuna fram og hefur dæmt fjölmarga leiki með Rögnvaldi síðan. Í þessum 1000 leikjum hefur Rögnvaldur dæmt með 75 mismunandi dómurum og oftast hefur meðdómarinn verið Björgvin Rúnarsson, en þeir félagar hafa dæmt 119 leiki saman. Í dag eru Úrvalsdeildarleikir Rögnvaldar orðnir 244 talsins, auk þess sem hann hefur dæmt fjölda leikja í úrslitakeppni karla og kvenna, bikarúrslitaleiki og aðra stórleiki. |