© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.11.2006 | 17:05 | oddur
Evrópukörfubolti á Eurosport 2
Pavel í leik með landsliðinu
Á þriðjudögum sýnir sjónvarpsstöðin Eurosport 2 frá Evrópukeppni í körfubolta og einnig frá spænsku deildinni. Dagurinn er nánast allur helgaður körfuknattleik.

Á morgun hefst dagurinn á leik Joventut og Unicaja liðinu hans Pavel. Þetta er leikur úr 9. umferð sem fram fór sl. laugardag. Leikurinn er sýndur kl. 10:00

Klukkan 14:00 hefjast svo endursýningar á leikjum sem voru í beinni útsendingu sl. þriðjudag þar sem Crvena Zvezda frá Serbíu lék á móti Real Madrid Spáni og Snaidero Udine frá Ítalíu lek gegn Anwil Wloclawek frá Póllandi. Klukkan 16:00 hefst svo samantektarþáttur úr spænsku deildinni og þar strax á eftir er sýndur samantektarþáttur frá meistaradeild Evrópu.

Klukkan 17:00 hefjast svo beinar útsendingar en sýndir verða 3 leikir beint. Fyrst er það viðureign Unics Kazan frá Rússlandi og Real Madrid frá Spáni þá næst Besiktas frá Tyrklandi og Anwil Wloclawek frá Póllandi, og síðasti leikurinn í beinni er leikur Siena frá Ítalíu og Lukoil Academic frá Búlgaríu.

Í desert er svo upptaka af leik Lietuvos Rytas frá Litháen og Cran Canarias frá Spáni sem er liðið hans Harðar Axels Vilhjálmssonar. Sá leikur hefst kl. 22:45

Þetta er sannkölluð körfuboltaveisla og hvetjum við alla áhugamenn um fagrar íþróttir að horfa á og njóta þess besta sem boðið er upp á.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrstu Íslandsmeistararnir fengu ekki verðlaunagrip ti eignar 1952. KKÍ færði hins vegar hverjum og einum meistaranna úr ÍKF fallegan grip mörgum árum síðar. Hér er Ingi Gunnarsson fyrirliði fyrstu meistaranna úr ÍKF með grip sinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið