
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 10.11.2006 | 17:16 | oddur Nokkrum leikjum frestað vegna veðurs 
Nokkrum leikjum hefur verið frestað vegna óveðursins sem að gengur yfir landið núna um helgina. Ekki var hægt að fljúga innanlands í dag svo að 3 leikir í 1. deild karla færast til. Leikur Þórs Akureyri og FSU hefur verið færður til sunnudags kl. 15:00 í Síðuskóla. Leikjum Stjörnunnar gegn Hetti og KFÍ gegn Val sem að áttu einnig að vera í kvöld kl. 19:15 hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Fjölliðamóti í B-riðli 7. flokks karla sem átti að vera í Vestmannaeyjum um þessa helgi var einnig frestað um óákveðinn tíma. Vonandi mun veðrið ekki valda frekari óþægindum. |