© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.10.2006 | 14:51 | oddur
Þriðju umferð lýkur í kvöld
Tim Ellis mun leika með Keflavík í kvöld (mynd tekin af vef Keflavíkur)
Þriðju umferð Iceland Express deildar karla í körfuknattleik lýkur í kvöld með tveimur leikjum.
Fjölnismenn fá Keflvíkinga í heimsókn til sín í Grafarvoginn og Tindastóll heimsækir ÍR í Seljaskóla.
Deildin hefur farið mjög vel af stað og nú þegar hafa farið fram ótrúlega margir spennandi leikir.

Keflvíkingar munu tefla fram nýjum leikmanni í kvöld í Grafarvoginum, en Tim Ellis, sem fenginn var til liðsins til þess að leika með Keflvíkingum í Evrópukeppninni hefur verið settur inn í hópinn í staðinn fyrir Jermaine Williams. Það má lesa nánar um þetta hérna

ÍR-ingar eru einnig nýlega búnir að fá til sín Bandarískan leikmann , LaMar Owen að nafni, en hann hefur leikið með þeim einn leik á tímabilinu. Þar stóð hann sig vel og skoraði 20 stig á aðeins 21 mínútu.

Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig þessir leikmenn falla inn í lið sín í leikjunum í kvöld.

Leikirnir hefjast báðir klukkan 19:15 og hvetjum við alla til þess að mæta á leikina og fylgjast með.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið