
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 19.10.2006 | 12:09 | OOJ Iceland Express deild kvenna hefst á þríhöfða í Grindavík   Ári kvennakörfunnar eru fagnað um alla Evrópu. Ísland verður engin undantekning og fyrsta umferð stelpnanna fer því öll fram í nýja og glæsilega parketinu í Grindavík. Opnunarleikurinn hefst klukkan 13.00 á laugardaginn og er milli Grindavíkur og nýliða Hamars sem spila þar sinn fyrsta leik í efstu deild kvenna. Íslenskur kvennakörfubolti hefur tekið stór skref á undanförnu ári. Ísland átti bæði félagslið (Haukar) og landslið í fyrsta skipti í evrópukeppni auk þess sem bæði 16 ára og 18 ára liðin tóku þátt í evrópukeppni annað árið í röð. Íslandsmeistarar Hauka halda áfram uppi merkjum íslenska kvennakörfuboltans því stelpurnar eru á leiðinni í Evrópukeppnina annað árið í röð. Haukar urðu einmitt Powerade-meistarar á dögunum og hafa þegar unnið þrjá titla á tímabilinu sem er í raun að hefjast á laugardaginn. Haukar unnu einnig SISU-mótið, æfingamót með SISU og þremur bestu liðum Íslands og síðan Meistarakeppnina í fyrsta sinn í sögu félagsins. Leikirnir þrír eru spilaðir hver á fætur öðrum. Gestgjafar Grindavíkur vígja fyrst Hamarsstúlkur inn í efstu deild í opnunarleiknum sem hefst klukkan 13.00. Klukkan 15.00 spila síðan Haukar og ÍS sem hafa mætast þar þriðju helgina í röð en liðin mættust einnig í undanúrslitum Powerade-bikarsins og í meistarakeppninni. Lokaleikur dagsins er síðan á milli Keflavíkur og Breiðabliks en hann hefst klukkan 17.00.  Haukar urðu Íslandsmeistarar kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins á síðasta tímabili. |