© 2000-2023 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.10.2006 | 10:20 | oddur | Iceland Express-deildin
Opnunarleikur Iceland Express deildar karla í Keflavík
Deildarkeppnin hefst í kvöld
Íslandsmót karla í körfuknattleik hefst í kvöld klukkan 19:15.
Iceland Express deildin verður sett í Keflavík. Keflvíkingar mæta þar Skallagrím klukkan 19:15. Þrír aðrir leikir verða leiknir í kvöld og fyrstu umferð lýkur svo á morgun með tveimur leikjum.

Íslandsmeistarar Njarðvíkur hefja titilvörn sína gegn ÍR í Seljaskóla. Haukar taka á móti Tindastól að Ásvöllum og Fjölnir fær Grindavík í heimsókn í Grafarvoginn.

Á morgun verða svo tveir hörkuleikir. KR tekur á móti Snæfelli í DHL-höllinni og Þór Þorlákshöfn og Hamar/Selfoss mætast í Þorlákshöfn.

Körfuknattleiksunnendur geta glaðst yfir því að tímabilið sé loksins að hefjast. Það er ljóst að mikil eftirvænting er fyrir komandi tímabil. Mörg lið hafa styrkt hóp sinn fyrir tímabilið og ætla sér stóra hluti í vetur.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið