S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
16.10.2006 | 18:00 | oddur
Leikmennirnir söfnuðu 160 þúsund krónum á vellinum.
Páll Axel safnaði mest í leiknum.
Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson safnaði mestu eða alls 15 þúsund krónum en hann var ásamt Agli Jónassyni sá eini sem náði bæði að troða boltanum í körfuna og að skora þriggja stiga körfu. Páll Axel skoraði fjóra þrista (alla í öðrum leikhluta) og tróð boltanum síðan í hraðaupphlaupi í seinni hálfleik. Egill tróð boltanum tvisvar sinnum í körfu Grindvíkinga og setti síðan þrist niður í lokin. Hjá stelpunum söfnuðu Haukastelpurnar Helena Sverrisdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir mest en báðar skoruðu þær tvær þriggja stiga körfur í leiknum. Í heildina söfnuðust á milli 7-800 þúsund krónur í söfnuninni. Við viljum þakka Iceland Express og Lýsingu sérstaklega fyrir framlag sitt vegna leikjanna. Einnig leikmönnunum, dómurum, einstaklingum og fyrirtækjum sem að lögðu sitt af mörkum til þessa góða málefnis. (Mynd tekin af karfan.is) |