S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
23.9.2006 | 12:24 | oddur
Ísland - Írland í dag kl. 16:00
Hildur Sigurðardóttir í leiknum gegn Noregi
Þegar þessum leik er lokið þá er keppnin hálfnuð, en seinni hluti keppninnar verður leikinn næsta haust. Bæði liðin hafa tapað fyrir Noregi og Hollandi í haust og stefna því á sinn fyrsta sigur í dag. Ef að stelpunum okkar tekst að sigra í dag þá komast þær í þriðja sætið í sínum riðli. Írska liðið kom til landsins í gær. Þær fóru á æfingu í gærkvöldi og svo aftur í morgun svo að þær eru klárar í slaginn. Íslenska liðið þarf að eiga góðan leik í dag til þess að ná að sigra gestina frá Írlandi. Það er ljóst að stelpurnar eiga mikið inni frá því í leiknum við Noreg. Vonandi ná þær að leika sinn besta leik í dag og knýja fram sigur. |