S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
22.9.2006 | 19:55 | oddur | FIBA
Rússar og Brasíliumenn í úrslit á HM kvenna
Stigahæst í rússneska liðinu var Rakhmatulina með 18 stig en í liði Bandaríkjanna gerði Diana Taurasi 21 stig. Rússar hófu leikinn af krafti og leiddu 25-13 að loknum fyrsta leikhluta. Þær unnu síðan þriðja leikhluta 21-6 og þar með var sigurinn í höfn. Í viðureign Brasilíu og Ástralíu gerði Penelope Taylor 26 stig fyrir Ástralíu og Iziane gerði 16 stig hjá Brasilíu. Leikurinn var jafn og spennandi allt fram að fjórða leikhluta þegar Ástralar hrukku í gírinn og unnu leikhlutann 12-31. Tékkar og Spánverjar leika um 7.-8. sæti í mótinu, Frakkland og Litháen leika um 5.-6. sæti í mótinu, Brasilía og Bandaríkin leika um 3.-4. sæti í mótinu og það verða Ástralía og Rússland sem etja kappi um heimsmeistaratitilinn á morgun. Fjölmiðlar vestanhafs deila nú hart á bæði landslið Bandaríkjanna, karla- og kvennaliðin, en fastlega var gert ráð fyrir því vestra að bæði lið myndu ekki eiga í teljandi vandræðum með að landa Heimsmeistaratitlinum í ár. (Frétt tekin af karfan.is) |