
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 18.9.2006 | 15:33 | OOJ | Landslið Signý efst í bæði stolnum boltum og vörðum skotum   Signý hefur stoppað 33 sóknir mótherjanna. Signý Hermannsdóttir hefur spilað vel í íslensku vörninni í fyrstu tveimur leikjunum. Hún hefur varið 8 skot, stolið 9 boltum og tekið 16 varnarfráköst og er meðal annars búin að verja þrjú fleiri skot en næsti leikmaður á listanum. Signý hefur þannig stoppað 33 sóknir mótherja íslenska landsliðsins eða 16,5 að meðaltali í leik. Signý er síðan í 3. til 4. sæti ásamt Helenu Sverrisdóttur í flestum fráköstum að meðaltali í leik en báðar hafa þær tekið 21 fráköst eða 10,5 í leik. Helena er efst í stoðsendingum ásamt Gilda Correia frá Portúgal og Anette Johansen frá Noregi en allar hafa þær gefið 8 stoðsendingar eða 4 að meðaltali í leik. Helena Sverrisdóttir er meðal efstu manna í stigum (4. sæti - 16,5 í leik) og þá er Birna Valgarðsdóttir í 3. sæti í þriggja stiga skotnýtingu en hún hefur nýtt 5 af 11 langskotum sínum eða 45,5% skota sinna fyrir utan þriggja stiga línuna. Þá má reyndar ekki líta framhjá því að Helena Sverrisdóttir hefur tapað langflestum boltum af öllum leikmönnum (9,5 að meðaltali í leik) og Birna Valgarðsdóttir hefur fengið flestar villur eða 9 af 10 mögulegum. Signý (74 mínútur - 37,0 í leik) og Helena (70 mínútur - 35,0) eru síðan þeir tveir leikmenn sem hafa spilað flestar mínútur í fyrstu tveimur umferðunum. Það má skoða þessa lista sem og aðra margskonar lista yfir tölfræðiárangur allra leikmanna í fyrstu tveimur umferðum b-deildarinnar hér. |