© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.9.2006 | 21:07 | OOJ
Stelpurnar töpuðu naumlega í fyrsta evrópuleiknum
Sætar saman, Birna, Bryndís og Helena.
Íslenska kvennalandsliðið tapaði með fimm stigum, 61-66, í fyrsta evrópuleiknum frá upphafi sem fram fór í Rotterdam í kvöld. Íslensku stelpurnar spiluðu mjög vel, voru yfir nánast allan tímann en þurftu að horfa á eftir sigrinum í blálok leiksins. Helena Sverrisdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 25 stig en hún fór meðal annars 19 sinnum á vítalínuna í leiknum. Ísland var með tveggja stiga forskot í hálfleik, 33-31, og náði mest 9 stig forskoti í tvígang í fyrri hálfleik.

Íslensku stelpurnar byrjuðu leikinn mjög vel og voru komnar í 16-7 eftir 9 mínútna leik. Ísland var síðan 16-10 yfir eftir fyrsta leikhluta og komst níu stigum yfir (31-22) þegar tæpar 3 mínútur voru til hálfleiks. Hollenska liðið átti góðan endasprett og kom muninum niður í 2 stig (33-31), fyrir leikhlé. Ísland skoraði fimm fyrstu stig seinni hálfleiks og hélt frumkvæðinu út leikhlutann en staðan var 53-49 fyrir okkar stelpur eftir 3. leikhluta. Íslensku stelpurnar héldu forustunni síðan allt þar til að hollenska liðið skoraði 9 stig í röð og breyttu stöðunni úr 59-56 fyrir Íslands í 59-65 fyrir Holland. Það munaði miklu um 30 sóknarfráköst hollenska liðsins og 27 tapaða bolta þess íslenska og með því að bæta sig á þessum sviðum eru stelpurnar til alls líklegar í heimaleikjunum tveimur gegn Írlandi og Noregi.

Holland komst í fyrsta sinn yfir í leiknum þegar aðeins 3 mínútur og 13 sekúndur voru eftir. Það munaði miklu þegar reyndasti leikmaður íslenska liðsins, Birna Valgarðsdóttir, fékk sína fimmtu villu þegar tæpar 4 mínútur voru eftir, en Ísland var þá þremur stigum yfir. Birna átti mjög góðan leik ásamt Helenu Sverrisdóttur en saman skoruðu þær 41 af 61 stigi Íslands í leiknum. Helena skoraði 25 stig þar af 18 þeirra í fyrri hálfleik en hún fékk alls 13 villur á hollenska liðið í leiknum. Fyrirliðinn, Signý Hermannsdóttir var líka mjög traust sérstaklega í vörninni þar sem hún var með 5 varin skot, 5 stolna bolta og 10 varnarfráköst. Kristrún Sigurjónsdóttir átti líka mjög góða innkomu af bekknum (8 stig, 4 fráköst, 2 stoðsendingar) í sínum fyrsta alvöru landsleik.

Atkvæðamestar hjá íslenska liðinu:
Helena Sverrisdóttir 25 stig, 8 fráköst, 13 fiskaðar villur
Birna Valgarðsdóttir 16 stig, hitti úr 6 af 11 skotum, 6 fiskaðar villur
Signý Hermannsdóttir 8 stig, 11 fráköst, 5 stolnir, 5 varin
Kristrún Sigurjónsdóttir 8 stig, 4 fráköst, hitti úr 2 af 2 þriggja stiga skotum sínum
Hildur Sigurðardóttir 2 stig
María Ben Erlingsdóttir 2 stig

Þrír leikmenn íslenska landsliðsins spiluðu sinn fyrsta landsleik í kvöld, Pálína Gunnlaugsdóttir var með 5 fráköst og 4 stoðsendingar á sínum 18 mínútum, Margrét Kara Sturlusdóttir tók 2 fráköst og gaf 2 stoðsendingar á 7 mínútum en Jovana Lilja Stefánsdóttir kom ekki við sögu.



Íslenska landsliðið sem spilaði gegn Hollandi í kvöld.Efri röð frá vinstri: Björg Hafsteinsdóttir, sjúkraþjálfari, Birna Valgarðsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Helena Sverrisdóttir, Signý Hermannsdóttir, Helga Jónasdóttir, María Ben Erlingsdóttir og Guðjón Skúlason, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Margrét Kara Sturludóttir, Hildur Sigurðardóttir, Jovana Lilja Stefánsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir, Þórunn Bjarnadóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ, Helena Sverrisóttir besti leikmaður Iceland Express deildar kvenna 2005-2006 og Bára Hálfdánardóttir á NM 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið