S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
9.9.2006 | 9:29 | OOJ | Landslið
Fyrsti evrópuleikurinn hjá stelpunum í Rotterdam í dag
A-landslið kvenna á æfingu í Hollandi
Hollenska liðið er mjög sterkt og ætlar sér stóra hluti í keppninni. Holland spilaði 11 æfingaleiki á síðustu þremur vikunum fyrir leikinn og því má búast við erfiðum leik í kvöld. Holland endaði í þriðja sæti í sínum riðli í síðustu evrópukeppni. Liðið vann þá þrjá leiki, tapaði þremur og endaði á eftir Slóveníu og Portúgal. Holland spilar heimaleik sinn í Rotterdam þar sem liðið vann báða leiki sína gegn Portúgal og Makedóníu en liðið tapaði heimaleiknum sem það spilaði ekki í Toppsportcentre-höllinni. Íslenska liðið æfði í höllinni í gær og allar eru ómeiddar og klárar í slaginn. Margar í liðinu eru að spila sinn fyrsta alvöruleik en þær yngri búa þó að því að hafa spilað í evrópukeppninni með yngri landsliðum. Landsliðsþjálfarinn Guðjón Skúlason stjórnar liðinu líka í fyrsta sinn í dag og því verður spennandi að sjá hvernig til tekst í dag. Systurnar Leonie og Laura Kooij verða örugglega í aðalhlutverki hjá Hollandi í leiknum en þær skoruðu flest stigin að meðaltali fyrir hollenska liðið í síðustu keppni. Aðrar sem þarf að hafa auga á í leiknum í dag er 190 sm miðherjinn Marloes Roetgerink, leikstjórnandinn Tanya Bröring og skotbakvörðurinn Irene Sloof svo að einhverjar séu nefndar af aðalleikmönnum liðsins. Líkt og hjá íslenska liðinu þá spila allir leikmenn Hollands í heimalandi sínu. |