S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.9.2006 | 17:50 | OOJ
Guðjón er búinn að velja hópinn fyrir Evrópukeppnina
Birna Valgarðsdóttir hefur leikið 65 landsleiki fyrir Ísland.
Guðjón hefur valið fimm nýliða í hópinn fyrir þetta verkefni, Haukastelpurnar Pálínu Gunnlaugsdóttur, Hönnu Hálfanardóttur og Sigrúnu Ámundadóttur, Grindvíkinginn Jovönu Lilju Stefánsdóttur og Keflvíkinginn Margréti Köru Stuludóttur, sem er jafnframt yngsti leikmaður liðsins, en Kara er á sautjánda ári. Leikreyndasti leikmaður liðsins er Birna Valgarðsdóttir sem hefur leikið alla landsleiki frá 1995 og bætir landsleikjamet sitt í hverjum leik. Íslandsmeistarar Hauka eiga flesta leikmenn í hópnum eða alls fimm en bæði Keflavík og bikarmeistarar ÍS eiga fjóra leikmenn í hópnum. Grindavík er síðan fjórða liðið sem á leikmann í þessu tímamótalandsliðið en þrjár stelpur koma þaðan. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir úr Keflavík var líka valin í hópinn en varð að gefa eftir sæti sitt vegna meiðsla. Hópinn skipa þessir leikmenn: Bakverðir Helena Sverrisdóttir, Haukum (15 leikir, 194 stig) Hildur Sigurðardóttir, Grindavík (46 leikir, 252 stig) Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukum (2 leikir, 0 stig) Pálína Gunnlaugsdóttir, Haukum (Nýliði) Stella Rún Kristjánsdóttir, ÍS (5 leikir, 7 stig) Framherjar Birna Valgarðsdóttir, Keflavík (65 leikir, 561 stig) Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík (7 leikir, 12 stig) Jovana Lilja Stefánsdóttir, Grindavík (Nýliði) Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík (Nýliði) Petrúnella Skúladóttir, Grindavík (2 leikir, 0 stig) Sigrún Ámundadóttir, Haukum (Nýliði) Þórunn Bjarnadóttir, ÍS (11 leikur, 14 stig) Miðherjar Hanna S. Hálfdanardóttir, Haukum (Nýliði) Helga Jónsdóttir, ÍS (16 leikir, 31 stig) María Ben Erlingsdóttir, Keflavík (13 leikir, 33 stig) Signý Hermannsdóttir, ÍS (38 leikir, 327 stig) |